Fara í efni

Styrkir til menningar- og/eða listviðburða í Langanesbyggð

Fréttir

Langanesbyggð auglýsir til úthlutunar styrki fyrir menningar- og/eða listviðburði í Langanesbyggð.
Styrkhæf verkefni eru þau sem tilgreind eru í 4. grein reglna um Menningarsjóð Langanesbyggðar en sjóðurinn starfar samkvæmt samþykktri Menningarstefnu Langanesbyggðar.

Greinargerð um verkefni sem sótt er um styrk til, skal fylgja með í umsókninni. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar merkt; Menningarsjóður – styrkumsókn  fyrir 1. maí 2024.

Nánari upplýsingar um styrkina veita sveitarstjóri og skrifstofustjóri Langanesbyggðar í síma 468 1220 eða á langanesbyggd@langanesbyggd.is

Eyðublað fyrir styrkumsókn