Fara í efni

Fjárhagsaðstoð

Félagsþjónusta Norðurþings sér um málefni er varða fjárhagsaðstoð fyrir Langanesbyggð.

Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili á þjónustusvæði Félagsþjónustu Norðurþings og hafa tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum. Aðstoðin er í formi styrks en getur í undantekningartilfellum verið í formi láns.

Ýmsar ástæður geta legið að baki þess að fólk þurfi á fjárhagsaðstoð að halda s.s. lág laun, atvinnuleysi eða veikindi. Sækja þarf um aðstoð í viðtali við félagsráðgjafa/ráðgjafa hjá Félagsþjónustu Norðurþings. Skila þarf inn eftirfarandi gögnum; staðfest afrit af skattframtali síðastliðins árs og afriti af launaseðlum síðustu þriggja mánaða.

Við úthlutun fjárhagsaðstoðar er farið eftir ákveðnum starfsreglum sem Félagsmálanefndirnar hafa sett og sveitarstjórnirnar staðfest.

Vakin er athygli á því að öll fjárhagsaðstoð til framfærslu er skattskyld.

Uppfært10. apríl 2013
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?