Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð - veiðihús í landi Tungusels

Fréttir

Deiliskipulag fyrir veiðihús í landi Tungusels

Skipulagslýsing

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. mars 2024 að auglýsa nýja skipulagslýsingu vegna vinnu við deiliskipulag fyrir veiðihús í landi Tungusels. Skipulagssvæðið er staðsett við austurbakka Hafralónsár milli Kverkár og Hafralónsár. Gert er ráð fyrir að aðkoma að svæðinu verði um vegslóða sem liggur á austurbakka Hafralónsár.

Skipulagsgögnin verða aðgengileg heimasíðu Langanesbyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins frá föstudeginum 22. mars 2024. Einnig er hægt að skoða skipulagslýsinguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á skipulagsgátt.is undir málsnúmeri 258/2024.

Óskað er eftir ábendingum og sjónarmiðum frá almenningi og umsagnaraðilum. Ábendingar skulu vera skriflegar og merktar „Veiðihús í landi Tungusels“ - skipulagslýsing“ og skal nafn sendanda, kennitala og heimilisfang koma fram. Þær skal senda á: Langanesbyggð Langanesvegur 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn.sigurdur.larusson@langanesbyggd.is. Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri í gegnum skipulagsgáttina undir máli númer 258/2024.

Frestur til að skila inn ábendingum er til og með föstudagsins 5. apríl 2024. Ábendingar verða hafðar til hliðsjónar í skipulagsvinnunni en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti.

Tengill á skipulagslýsinguna er hér: skipulagslysing-langanesbyggd-tungusel_deiliskipulag-20240306.pdf

Björn S. Lárusson
Sveitarstjóri Langanesbyggðar